|
Hofsdalur
skerst til vesturs frá Álftafirði í átt að Vatnajökli og Flugustaðadalur
teygist suður úr honum.
Báðir dalirnir eru að mestu óbyggðir.
Talsvert skóglendi er í dölunum, einkum í Tungu, sem er á
milli þeirra.
Hofsá fellur um Hofsdal til Álftafjarðar.
Upptök hennar eru Hofsvötn austan Hofsjökuls.
Þau sameinast Hofsá í Flugustaðadal, stórri á úr Hofsjökli,
sem ber mikið fram og er að smáfylla Álftafjörð.
Á bak við Stórafoss er stór, manngengur hellir.
Áin var brúuð við Flugustaði árið 1955 og varnargarðinum
var lokið næsta ár.
Hofsjökull
(1069m) er rúmlega 13 km² milli Víðidals í Lóni og Hofsdals í Álftafirði.
Skriðjökulstungan, sem gengur niður í Víðidal, heitir Morsárjökull.
Fyrrum lá leið úr Víðidal um skarð milli Hofsjökuls og
Tungutinda (1175m), stytzt leiða að bæjum í utanverðum Hofsdal.
Sigfús Jónsson, sem byggði í Víðidal, var í för með Þorvaldi
Thoroddsen um þessar slóðir árið 1882. |