|
Hofstaðir
eru við norðanverðan Hofsvog í Helgafellssveit.
Þórólfur Mostraskegg Örnólfsson nam þar land Milli Stafár
og Þórsár og nefndi nesið Þórsnes, enda byggði hann traust sitt
á þrumuguðnum.
Í Eyrbyggju er líklega bezta og merkast lýsing á hofi því,
sem Þórólfur lét reisa við bæ sinn, þótt engin merki sjáist um
það nú á dögum.
Þórólfur
er sagður hafa sett fyrsta þing á Íslandi og rök hafa verið færð
að því, að það hafi verið haldið á Jónsnesi vestar með
Hofsvogi, en þar sjást engar minjar um þinghaldið á yfirborðinu.
Hitaveita kom í Hólminn 1999. Borað var
að Hofsstöðum nokkru sunnan bæjarins 1994 og upp kom nægilega heitt vatn
til verksins. Framtakssamir menn komu fyrir fiskikerjum við borholuna
áður en vatnið var nýtt og fóru að baða sig. Í ljós kom, að vatnið
hafði góð áhrif á húð fólks, einkum þess, sem á við húðvandamál að
stríða. Vatnið var rannsakað og svo virðist sem sölt í því geri það
jafngott eða betra til þessa brúks en í heilsulindunum í Baden Baden í
Þýzkalandi. Sundlaug var opnuð í Hólminum 1999. |