|
Skólasetur og kirkjustaður í Hjaltadal. Um 1100
átti Illugi Bjarnason prestur jörðina. Þá var ákveðið, að
biskupsstóll skyldi settur á Norðurlandi, en enginn vildi standa upp
af föðurleifð sinni fyrr en Illugi varð til þess að gefa Hóla til
biskupsseturs. Gerði hann það „fyrir guðs sakir og nauðsynja
heilagrar kirkju”, segir í Jónssögu helga.
Hólar
voru biskupssetur um 7 alda skeið, á árunum 1106-1798, og
raunverulegur höfuðstaður Norðurlands á þeim tíma. Skóli var
þar löngum samtímis biskupssetrinu en hann var lagður niður 1802.
Mörg örnefni eru í landi Hóla, sem minna á sögu staðarins.
Kirkjan átti að heita fullgerð haustið 1763 og var vígð með
mikilli viðhöfn hinn 20 nóvember það ár. Dr. Kristján Eldjárn
ritaði bækling um Hóladómkirkju (Um Hólakirkju; 1950; endurútg.
1963).
Árið 1881 keypti
Skagafjarðarsýsla Hóla og 1882 var stofnaður þar búnaðarskóli.
Fiskibúið Hólalax hf. var stofnað 1980. Heitt vatn var leitt
þangað frá Reykjum árið 1980 en 1981 var það leitt til Hóla. Lögð er áherzla á kennslu í
ferðamálafræðum, hrossarækt,
tamingum, fiskeldi og vatnalíffræði.
Helgina 12.-13. ágúst 2006 var haldin mikil hátíð að Hólum
til minningar um 900 ára sögu Hólastóls. Ríkisstjórnin
afhenti rúmlega 500 bækur úr safni séra Ragnars fjalars
Lárussonar og landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson,
sagði frá frumvarpi um stofnun háskóla að Hólum.
SÖGUSLÓÐ
Gengið eftir vörðum í slóð biskupanna um
hinn forna Hólastað: Dómkirkjuna, biskupssetrið, Hólaprentsmiðju, skóla Jóns helga, Latínuskólann, Virkishól Jóns
Arasonar, hina helgu lind Guðmundar góða (Gvendarbrunn), að gamla
bænum (torfbæ frá árinu 1857), íbúð Jóns Benediktssonar (Hóla-Jóns).
Þar lézt Þóra Gunnarsdóttir, sem Jónas Hallgrímsson orti um
kvæðið „Ferðalok", eitthvert fegursta ástarljóð á
íslenzkri tungu.
Óhætt er að mæla með göngu upp
að Gvendaraltari í hlíðum Hólabyrðu. Smágjald er tekið fyrir
leiðsögu um dómkirkjuna og nánasta umhverfi staðarins á
sumrin kl. 10-18. Kirkjan, Auðunarstofa og
Nýjibær eru opin á þessun tíma. Á veturna er hægt að fá þessa þjónustu eftir
nánara samkomulagi.
Víðines er næsti bær við Hóla.
Hinn 9. september 1208 háðu Guðmundur biskup Arason og
Kolbeinn Tumason eina stórorrustu sturlungaaldar.
Kolbeinn var einhver voldugasti höfðingi Norðurlands og varð
til þess, að Guðmundur var kjörinn biskup nauðugur.
Þeir urðu síðan hinir mestu fjandmenn. Í
Viðinesbardaga var Kolbeinn með 400 manna lið en Guðmundur
var fáliðaðri. Þarna féll Kolbeinn, fékk stein í
höfuðið, og menn hans hörfuðu. Jeppavegur liggur upp
um Hálsgróf að eyðibýlinu Fjalli í Kolbeinsdal frá Víðinesi.
Þessi leið var fjölfarin fyrrum, þegar Kolbeinsdalur var í
byggð og enn þá var ferðast um Heljardalsheiði milli Hóla og
Svarfaðardals. |