|
Hólmatindur
(985m) er milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar.
Hann er eitthvert tignarlegasta fjallið við þessa firði. Hólmaháls teygir sig niður á Hólmanes, sem var friðlýst
sem fólkvangur og að hluta sem friðland árið 1973.
Klettaborgirn tvær, Hólmaborgir, eru þar og á Langhömrum
er völvuleiði. Sagan
segir, að völvan hafi lagt svo á, að Reyðarfjörður yrði ekki
fyrir árásum ræningja á meðan bein hennar væru ófúin.
Tyrkir hröktust undan óveðri, þegar þeir reyndu að sigla
inn fjörðinn snemma á 17. öld og þýzk flugvél fórst í fjalli
í firðinum síðar. Englendingar
urðu ekki fyrir skakkaföllum af völdum völvunnar, því að þeir
voru menn friðarins. Skriðuföll
eru algeng úr Hólmatindi. |