|
Holt
í Önundarfirði hefur verið mikið höfuðból og prestsetur um aldir
og talið meðal beztu brauða landsins vegna ýmissa hlunninda. Holtskirkja
var byggð 1869.
Sagt er, að Oddur Einarsson, biskup í Skálholti, hafi vísiterað
Holt og sagt séra Sveini Símonarsyni og konu hans Ragnheiði, að líklega
yrði einn sona þeirra biskup að sér gengnum.
Eftir að hafa séð syni þeirra hjóna sagðist Oddur ekki sjá
biskupsefni þar en lagði hönd á maga Ragnheiðar og sagði að þar
væri hann niðurkominn.
Það
var Brynjólfur biskup Sveinsson (1605-75) í Skálholti.
Árið 1975 var honum reistur minnisvarði í Holti.
Hann safnaði gömlum handritum, þ.m.t. Flateyjarbók, sem er
talin fallegasta varðveitta skinnhandritið.
Friðrik III, Danakonungur, þáði það að gjöf frá Brynjólfi.
Séra
Jón Eggertsson (1731-83), prestur í Holti, reið fram af háum hömrum
en honum tókst að skreiðast heim, þar sem hann lézt af sárum sínum.
Næsti prestur, Jón Sigurðsson, drukknaði í árósnum og síðan
er talið reimt þar.
Mynd: Holtsflugvöllur við Önundarfjörð |