Holuhraun,

Gönguleiðir Ísland


HOLUHRAUN
Hvernig kemst ég þangað
.

.

Ferðaáætlanir
Rútur-Ferjur-Flug


Ferðaheimur

Holuhraun kom líklega úr gígaröðum við jaðar Dyngjujökuls og í hrauninu sjálfu, nokkuð norðar.  Það er úfið og illt yfirferðar sunnantil en sandorpið og slétt norðantil.

Vestan hraunsins eru svokallaðar Flæður og vestan þeirra er Urðarháls.  Um Flæðurnar rennur talsvert vatn í leysingum og síðdegis á sólríkum og heitum dögum.  Það hverfur oftast í sandinn, þegar norðar kemur.  Þarnar hafa margir fest jeppa og rútur vegna reynsluleysis. Jökulvatnið, sem rennur um Flæðurnar ber með sér fínan jökulsalla, sem rýkur upp við minnsta vind, þegar þær eru þurrar og þá er betra að vera með áttavita við höndina eða að hafa GPS punktana í lagi. Í góðu skyggni má sjá allan fjallahringinn á þessari síðustu, ósnortnu fjallaleið landsins.

Austan Holuhrauns teygist jaðar Dyngjujökuls að Kverkfjöllum, þar sem aðalkvíslar Jökulsár á Fjöllum koma undan jöklinum.  Árið 1880 fóru svokallaðir landaleitarmenn um þessar slóðir og kölluðu hraunið Kvíslarhraun en Þorvaldur Thoroddsen skírði það Holuhraun fjórum árum síðar.

Kistufell 7 km Urðarháls 5 km <Holuhraun> Askja (Drekagil) 43 km.


TIL BAKA          Nat.is - pósthólf 8593, 108 Reykjavik- sími: 898-0355 - nat@nat.is- um okkur - heimildir          HEIM