|
Hörgsdalur
er bær á Mývatnsheiði í Mývatnssveit.
Þar fannst mannvirki, sem líklega var hörgurinn (hofið), sem
bærinn er kenndur við.
Það er tæplega 10 m langt og 6 m breitt.
Um það þvert er grjótbálkur, sem nær ekki veggja á milli.
Ofan á honum eru fjórir stórir steinar undir sléttri og
eldborinni hellu, sem í er klöppuð grunn skál.
Undir hellunni er lítil steinn með íklöppuðum bolla.
Tilgátur eru uppi um, að þarna hafi verið fórnaraltari.
Brýni, kljásteinar og ýmsir smámunir fundust ásamt ösku og
viðarkolum.
(Árbórk Fornleifafélagsins 1901 og 1903). |