|
Hornvík
er milli Hornbjargs að austan og Hælavíkurbjargs að vestan og vestar
er Hælavík.
Látravík og Hornbjargsviti eru austan Hornbjargs.
Austan Hælavíkurbjargs skilur Hvannadalur það frá Rekavíkurfjalli
og úr því gengur berggangurinn Háfur í sjó.
Inn af Rekavík er Hafnarfjall, þar sem farið var og er um skörðin
til Jökulfjarða.
Eyðibýlið Horn er austan víkurinnar í Miðdal.
Utar er Yztidalur og innar Innstidalur milli Hornbjargs og Dögunarfells.
Á þessum slóðum ber Kálfatinda (534m) hæst.
Huldufólksbyggð er í Austmannskletti og Skipakletti.
Grænanes við Hornvík austanverða er grænn blettur með
klettastöndum, s.s. Steinþórsstandi, sem heitir eftir hinum fræga
skessu- og hvítabjarnabana.
Á undirlendinu við sjóinn eru sandar og melar og
mýrlendi ofar. Hvítfyssandi
lækir steypast niður brattar hlíðarnar og mynda Hafnarós.
Einum degi er vel varið til skoðunarferðar um næsta nágrenni.
Fyrrum
voru þrír bæir við Hornvík, Rekavík bak Höfn vestast, Höfn og
Horn austast, sem fóru í eyði fyrir löngu.
Fjallið Kollur er innan við Rekavík og alfaraleiðin milli bæjarins
þar og Hafnar lá um Tröllaskarð í Tröllakambi, sem er 70 m hár
klettur út úr fjallinu.
Naust Hafnarbæjarins voru
við Hafnarklett, sem er á göngulleiðinni meðfram ströndinni.
Bænhús var fyrrum í Höfn og nú er þar tjaldstæði með kömrum
og rennandi vatni.
Bærinn Horn er á marbakka, sem myndaðist við hærri sjávarstöðu.
Þar eru fallegar skvompur og grösugir stallar.
Fjórði bærinn á þessum slóðum var byggður (1904) í hlíðinni
undir Jörundi, þar sem heitir Baldvinshlein (Baldvin Sigfússon).
Gönguleiðir:
Rekavík bak Höfn í Hvannadal um brattar hlíðar Rekavíkurfjalls.
Þaðan er leið um Atlaskarð til Hælavíkur, um Skálakamb til
Hlöðuvíkur og á Hælavíkurbjarg.
Einnig er hægt að ganga beint upp í Atlaskarð frá bænum.
Frá
Höfn er gengið um Hafnarskarð í botn Veiðileysufjarðar.
Gengið er upp með Hafnarósi um Kýrskarð til Hornbjargsvita
við Látravík.
Frá Horni er gönguleið út í Yztadal og þaðan er hægt að
ganga á bjargbrúninni yfir Miðfell og síðan ofarlega í hlíðum Miðdals
undir Jörundi á Kálfatinda. |