|
Hrafnagil
er stórbýli frá fornu fari, fyrrum kirkjustaður og prestssetur í
Hrafnagilshreppi, 12 km sunnan Akureyrar.
Katólskar kirkjur á staðnum voru helgaðar Pétri postula og
útkirkja var í Kaupangi.
Sóknarkirkjan var flutt til Akureyrar 1863 en prestur sat staðinn
til 1880.
Nafnkunnastur presta staðarins er Jón Arason, síðar Hólabiskup.
Hann þjónaði á Hrafnagili 1508-19.
Þorsteinn Ketilsson (1688-1754) þjónaði Hrafnagilssókn frá
1716 til dánardægurs.
Hann var álitinn einhver bezti kennimaður um sína daga í Hólabiskupsdæmi
og var meðal biskupskandídata.
Samkvæmt
Sturlungu var eitt níðingslegasta víg Sturlungaaldar unnið að
Hrafnagili.
Þar tók Þorvarður Þórainsson Þorgils skarða Böðvarsson
af lífi um jólin 1258.
Þorgils þótti einn efnilegasti höfðingi á landinu en Þorvarði
fannst hann ganga á sinn hlut í Eyjafirði.
Þorgils hafði gert vel til Þorvarðar og varð hann mjög óvinsæll
af þessu ódæði.
Á
Hrafnagili er að þróast byggð og þar er grunnskóli
og félagsheimilið Laugaborg (1960).
Eldri samkomustaður sveitarinnar var við Hrafnagilslaug.
Hitaveita Akureyrar boraði eftir heitu vatni í landi Hrafnagils.
Í hverfinu við Hrafnagil eru gróðurhús með veitingastað og
Jólaland. |