|
Hrafnkelsdalur er 18 km langur, þar til hann
skiptist í tvo dali, Glúmstaðadal og Þuríðarstaðadal, og liggur
suður úr Jökuldal frá Brú. Dalurinn er tiltölulega sléttur og
í u.þ.b. 400 m hæð yfir sjó. Þrátt fyrir hæðina, er hann
allvelgróinn.
Jarðhiti finnst á nokkrum stöðum. Dalurinn ber
nafn Hrafnkels Freysgoða, sem bjó á Aðalbóli, sem er annar
tveggja byggðra bóla þar. Fornar byggðarleifar finnast víða,
þannig að byggð mun hafa verið mun meiri fyrrum.
Rústir Laugarhúsa eru í dalnum austanverðum,
gegnt Aðalbóli. Þar sér enn til húsatófta og
túngarðsleifa. Laugarhús drógu nafn sitt af heitri laug eða
lind, sem á uppsprettu sína fyrir
ofan bæinn og rennur lækur frá henni um tætturnar. Einhvern
tíma í búskaparsögu Laugarhúsa hefur laugin verið hlaðin upp
og lögð grjóti
í botninn. Í máldaga Valþjófsstaðakirkju frá 1397 kemur
fram að hún átti selland að Laugarhúsum. Árið 1902 gerði
Daniel Bruun uppdrátt af rústunum. Taldi hann að hluti
þeirra væri eftir fornbýli en aðrar tóftir væru leifar
selsins frá Valþjófsstað. Mannvistarleifarnar á Laugarhúsum
eru í allmikilli rústabungu um 20 metra í þvermál. Borað
var í rústirnar á nokkrum stöðum til að
kanna aldur þeirra út frá jarðvegslögum. Þær
rannsóknir leiddu í ljós, að byggð
var á staðnum á ýmsum tímum á miðöldum,
en flestar virtust rústirnar vera frá því um 1400. Í
Hrafnkelssögu Freysgoða er sagt að Bjarni, faðir þeirra Sáms
og Eyvindar, hafi búið á Laugarhúsum. Þeir feðgar elduðu
löngum grátt silfur við Hrafnkel, nágranna sinn á Aðalbóli.
Sóknarlýsing Þorvaldar Ásgeirssonar í Hofteigi, frá 1874
nefnir skóga í sókninni, sem nú séu
„alveg eyðilagðir.“ Þ.á.m. er getið um Laugarhúsaskóg sem
var rauðvíðiskógur.
Jeppaleið liggur
upp úr dalnum inn á Vesturöræfi
að Snæfelli
og Eyjabökkum. |