|
Hrafntinnuhryggur
(685m) er skammt austan og suðaustan Kröflu á Mývatnsöræfum.
Hann myndaðist líklega í gosi undir jökli.
Eftir honum endilöngum er stór og mikill gangur úr hrafntinnu
og víða umhverfis, þ.m.t. í skriðunum, eru misstór brot úr henni.
Gæta verður varúðar, þegar fólk brýtur hana, því að hún
er glerkennd og flísar geta skotist í augu þess. Hrafntinna var
numin úr Skerinu til skreytingar á Þjóðleikhúsinu 1936.
Það
er óhætt að mæla með göngu frá sprengigígnum Víti í Kröfluhlíðum,
upp á Kröflu og niður suðurskriðurnar, þaðan upp á
hrafntinnuhrygg og niður veginn að Kröflustöð.
Þar er hlið, sem er yfirleitt lokað mað keðju.
Óski fólk að aka upp að hryggnum, er hægt að fá leyfi í
Kröflustöð til þess. |