|
Hraunfossar eru líka nefndir Girðingar. Þeir eru meðal fegurstu
náttúruperlna landsins, þar sem þeir spýtast undan
jaðri Hallmundarhrauns út í
Hvítá.
Göngubrúin yfir Hvítá, sem var upprunalega
byggð 1891 og endurnýjuð 1991, var notuð til
að reka fé yfir ána en nú er öldin önnur og öllu
fé er ekið á milli staða. Ofan brúarinnar er
Barnafoss í Hvítá.
Barnafoss. Sagt er að eitt sinn hafi búið efnuð ekkja
í Hraunsási, sem átti tvö börn. Hún fór
eitt sinn með hjú sín til jólamessu að Gilsbakka og skildi börnin eftir heima. Börnin voru horfin, þegar
fólkið kom til baka en spor þeirra fundust, þar sem þau lágu
niður að steinboganum yfir ána. Augljóst þótti, að þau hefðu fallið í ána og drukknað.
Móðirin lét þá brjóta bogann og gaf
Reykholtskirkju Norðurreyki í minningu barnanna.
Heiðarvíga saga segir frá þessum steinboga:
„Þá var brú á Bjarnafossi (Barnafossi) og lengi
síðan". Landnáma segir, að Hvítá hafi áður runnið um Melrakkadal (Skolladal) en Músa-Bölverkur
í Hraunsási hafi veitt henni í gegnum ásinn í farveginn, sem hún rennur um nú. |