|
Hraunhafnartangi á Melrakkasléttu er
næstnyrzti tangi
landsins (66°32"3'N)
3 km sunnan heimskautsbaugs. Vitinn, sem
stóð á Rifstanga (nyrzta tanga landsins), var fluttur þangað árið 1945.
Hraunhafnarvatn, sem er gott veiðivatn, er sunnan Hraunhafnartanga. Hraunhöfn var
þekkt höfn og skipalægi á söguöld og nöfn margra fornkappa eru
tengd henni.
Fóstbræðra saga segir frá vígi Þorgeirs
Hávarssonar eftir að hann banaði fjórtán. Grjóthrúga á staðnum er sögð vera dys hans.
Hraunhafnar er getið í Gunnlaugs sögu, Reykdæla sögu og
Íslendingabók. Landnáma segir frá Arngeiri, sem nam Sléttu milli
Hávararlóns og Sveinungsvíkur. Þorgils og Oddur voru synir hans og
dóttirin Þuríður. Arngeir og Þorgils fóru eitt sinn í
smalamennsku og urðu fyrir árás bjarndýrs, sem drap þá báða.
Oddur kom að vígvellinum, drap björninn og flutti
hann heim og át. Hann varð hamrammur af átinu og erfiður viðureignar.
Hann gekk frá Hraunhöfn að kvöldi og kom morguninn eftir
í
Þjórsárdal
til að liðsinna systur sinni á Steinastöðum, sem
Þjórsárdælingar ætluðu að grýta í hel fyrir tröllskap.
Bærinn Harðbakur er upp af Hraunhafnartanga. Hann getur hafa heitið
Hraunhöfn áður. Finnur Jónsson (1894-1951), alþingismaður og
ráðherra, fæddist þar. Meyjarþúfa er lítill hóll með priki á
toppi 200-300 m sunnan þjóðvegarins milli Harðbaks og
Hraunhafnartanga. Í tengslum við hana er sagt, að plága hafi
herjað á Sléttubúa og allir andast nema ein kona og einn karl,
annað á Austur-Sléttu og hitt á Vestur-Sléttu. Þau lögðu
bæði land undir fót til að finna annað fólk og hittust á
Meyjarþúfu, þar sem ný kynslóð kviknaði.
Bæklingar um ferða- gönguleiðir í Kelduhverfi, þjóðgarðinum
og á Melrakkasléttu fást í aðalmiðstöð þjóðgarðsins í Ásbyrgi. |