|
Hrossaborg er annar tveggja þekktra, samkynja
gjóskugíga á
Norðausturlandi. Hinn er Hverfjall í Mývatnssveit. Báðir eru
myndaðir í tengslum við þeytigos í vatni eða við miklar
grunnvatnsbirgðir. Hrossaborg er eldri, u.þ.b. 10.000 ára, en Hverfjall
2500 ára.
Mývetningar beittu hrossum sínum gjarnan á
þessu svæði og notuðu gíginn sem aðhald fyrir þau á meðan
leitum var haldið áfram. Að þeim loknum var allt stóðið rekið
niður í Mývatnssveit. Vegur liggur alla leið inn í gíginn, sem
lítur út eins og stórt hringleikahús, þegar inn er komið. Leiðin
inn í Herðubreiðarlindir liggur steinsnar austan Hrossaborgar.
Þeim, sem vilja kynna sér þessar slóðir betur, skal bent á
sögurnar um Fjalla-Bensa og bækurnar um Ódáðahraun eftir Ólaf
Jónsson. Ennfremur nánari umfjöllun á hálendissíðum þessa
vefseturs.
Mývatn 43 km <Hrossaborg>
Grafalönd
eystri 40 km, Herðubreiðarlindir 60 km, Egilsstaðir
122 km. |