|
Húnaflói
milli Stranda og Skaga er stærstur norðlenzkra fjarða. Mesta breidd
hans er í kringum 50 km milli Skaga og Krossaness. Lengd hans frá
mynni að Þingeyrarsandi er u.þ.b. 50 km og 100 km í botn
Hrútafjarðar. Strandamegin er hann mjög vogskorinn og suður úr honum
ganga þrír stórir firðir. Hann er mjög misdjúpur og undirlendi að
honum er minnst að vestanverðu. Talsverð fiskgengd er í flóanum og
þar eru góð rækjumið. Hafíss gætir oft í Húnaflóa og stundum lóna
stórir jakar þar sumarlangt. Árið 1244 háðu Kolbeinn ungi Tumason og
Þórður kakali einu sjóorrustuna, sem háð hefur verið hérlendis, ef
þorskastríðin eru ekki talin með. Þá fór Kolbeinn með tæpan sigur af
hólmi, þótt hann hefði ofurefli liðs.
Sjá: upphafið Húnaflóa bardaga
Mynd: Kaldbakshorn |