|
Húsavík er lítil vík norðan
Loðmundarfjarðar með Kolbeinsnes að norðan og Hafnarnes að sunnan. Í
miðri víkinni er Húsavíkurkambur, sem skiptir víkurbotninum í tvo
sveigmyndaða reiti. Víkurá rennur um u.þ.b. 6 km langan dal og víða í
fjöllunum er ríólít. Mikið er af fallega sorfnum steinum í fjörunni.
Allt fram á miðja 20. öld
voru fjögur býli í byggð í dalnum. Þeirra stærst var kirkjustaðurinn
Húsavík, sem var metin dýrasta jörð á Íslandi á öldum áður. Hún fór
síðust í eyði árið 1973. Hinn 5. marz 1938 fuku öll bæjarhúsin með
fólki og fénaði niður fyrir sjávarbakkann í foráttuveðri. Allir komust
af lítt meiddir, sem þykir ganga kraftaverki næst.
Katólsku kirkjurnar í Húsavík voru
helgaðar Maríu guðsmóður og kirkjan, sem stendur þar nú, var
byggð 1937-1939. Þetta er lítið trékirkja
með sætum fyrir 25-20 manns og litlu klukknaporti. Hún
skemmdist í veðurhamnum 1938 en stóð þó á grunninum. Í henni
er skírnarskál úr tini og ártalinu 1685
og tveir koparstjakar frá svipuðum tíma. Tvenn gömul
altarisklæði, gamall hökull og rykkilín úr kirkjunni eru í
Þjóðminjasafni.
Veðrun og landbrot
hafa brotið niður hluta af gamla kirkjugarðinum sem stendur á
sjávarbakkanum, skammt frá kirkjunni, þannig að kistubrot og bein hafa
verið að koma í ljós. Húsavík var allstór verstöð forðum og allt til
1930. Þar höfðu Færeyingar bækistöð á sumrin. Ágætur jeppavegur
liggur frá Borgarfirði eystri um Húsavíkurheiði til Húsavíkur og áfram
um Nesháls til Loðmundarfjarðar. |