|
Hvammur
er prestssetur og kirkjustaður í Hvammssveit í Dölum með útkirkjur á Staðarhóli,
Skarði, Staðarfelli og í Dagverðarnesi.
Katólskar kirkjur staðarins voru helgaðar guði og Maríu mey,
Jóhannesi skírara, postulunum Jóhannesi skírara og Pétri, Ólafi
Noregskonungi, Þorláki biskupi, Maríu Magdalenu og öllum helgum mönnum. Kirkjan, sem nú stendur, var vígð árið 1884.
Hún er úr timbri og miklar endurbætur voru gerðar á henni á
síðari hluta 20. aldar.
Auður
djúpúðga Ketilsdóttir bjó þar í landnámi sínu og þar var höfðingjasetur
fyrrum. Meðal höfðingja,
sem sátu þar, var Þórður gellir (10. öld), einhver mesti höfðingi
Vesturlands á sínum dögum og átti þátt í stofnun fjórðungsþinga.
Hvamms-Sturla Þórðarson (1115-1183), ættfaðir Sturlunga og
faðir Snorra (1171-1240), bjó þar.
Sturla var harður í horn að taka og slunginn og átti í útistöðum við
menn. Sturlungasaga
segir sérstaklega frá honum.
Hvammur
er í Skeggjadal, sem er mjög skjólsæll.
Sagt er, að sonur Þórðar gellis, Skeggi, hafi búið að
Hvammi. Hvammur, Skerðingsstaður
og Hofakur eru byggð ból í dalnum. Þar er líka allstór skógræktargirðing Dalamanna (u.þ.b.
55 ha). Ritari Hvammsannáls,
sr. Þórður Þórðarson (1684-1739),
var prestur í Hvammi frá 1721 til æviloka. |