|
Hvanndalabjarg
er u.þ.b. 600 m hátt standberg milli Ólafsfjarðar og Hvanndala, víða
skorið gjám og skörðum.
Hrikalegust er Skötugjá, rétt utan Fossdals í Ólafsfirði.
Sýrdalur gengur niður miðju bjargsins og neðan hans er þverhnípið
200 m hátt.
Þjóðsagan um séra Hálfdán Narfason á Felli í Sléttuhlíð
er vel kunn.
Eitt sinn, þegar hjón nokkur höfðu búið í Málmey á
Skagafirði í rúmlega 20 ár, en þau álög voru á eyjunni, að
engin hjón mættu búa þar lengur en í 20 ár, ella hyrfi húsfreyjan,
hvarf konan sporlaust.
Bóndinn gat ekki á helium sér tekið og nauðaði nógu lengi
í séra Hálfdáni, sem vissi meira en nef hans náði, til að hjálpa
sér við að finna konuna aftur.
Séra Hálfdán taldi öll tormerki á því og reyndi að
fullvissa bónda um, að hann vildi ekki fá hana aftur, ef hann sæi
hana í þvi ástandi, sem hún væri komin í.
Loksins tvímenntu þeir á hestinum Grána og riðu um láð og lög þar til þeir komu að
Hvanndalabjörgum.
Þar barði Hálfdán á bergið og þurs kom til dyra með konu
bónda.
Hún var orðin mjög tröllsleg ásýndum, þannig að bóndi
vildi ekki fá hana heim aftur.
Jón Trausti orti kvæðið Konan í Hvanndalabjörgum. |