|
Á landi Hveravalla í Reykjahverfi er einhver mesti jarðhiti í S.-Þingeyjarsýslu.
Hverasvæðið var í landi Stóru-Reykja. Aðalhverirnir eru Yztihver, Uxahver, og
Syðstihver. Uxahver var þeirra virkastur og margar sögur fóru af honum. Hann hætti
að gjósa eftir jarðskjálftahrinuna árið 1872.
Árið 1905 var yfirborð Yztahvers
lækkað og hann fór að gjósa. Gos hans hafa mælzt allt að 25 m há. Vatnsmagn allra
hveranna er áætlað 70-80 l/sek. Ræktun kartaflna hófst við hverina árið 1878.
Árið 1904 stofnuðu Reykhverfingar garðræktarfélag um garðyrkjuna á svæðinu. Til
þess var keyptur hluti af jarðhitasvæðinu og síðar þriðjungur Reykjalands og
býlið Hveravellir var reist. Þar hefur verið stunduð gróðurhúsarækt síðan 1933.
Sundlaug og félagsheimili er á staðnum og hitaveita var lögð þaðan til Húsavíkur
árið 1970. |