|
Á
11. öld bjó bóndi að nafni Sveinn að Hvítárbakka (Bæjarsveit).
Grettir Ásmundason stal frá honum merinni Söðulkollu og sendi honum boð
um, að hann hyggðist eiga næturstað að Gilsbakka. Sveinn reið
þangað til að heimta merina aftur og sat með Gretti alla nóttina við
kveðskap, þannig að þeir skildu vinir um morguninn. Þórður kakali
flúði að Bakka undan Kolbeini unga árið 1242.
Lýðháskóli
Sigurðar Þórólfssonar (1869-1929) var rekinn þar á árunum
1905-20 og var síðan fluttur að Reykholti Sigurður
skrifaði margar greinar og bækur um almenn fræði og gaf út
búnaðarblaðið Plóg 1897-1907. Anna Sigurðardóttir
stofnaði Kvennasögusafnið 1931. Um tíma var rekið
gistiheimili að Hvítárvöllum og staðurinn bundinn samningi
við varnarliðið í nokkur ár. Árið 2003 var rekin þar
aðildarstofnun Félags íslenzkra uppeldis- og
meðferðarstofnana fyrir börn og unglinga (FÍUM). Árið 2006
var komin bændagisting að Hvítárbakka. |