|
Jarðbaðshólar eru fornir gígar rétt sunnan
við þjóðveg #1, milli Námaskarðs og Reykjahlíðarþorps.
Gígaröðin, sem myndaðist í Mývatnseldum hinum fyrri 1725, nær
vestan í þá. Hraunin, sem runnu milli Reykjahlíðar og
Geiteyjarstrandar eru talin hafa runnið þaðan. Jarðhitinn á
þessu svæði er talsverður enn þá og gufur leggur víða upp í
gegnum sprungur í gígunum og hraununum.
Þarna var byggður kofi yfir gufuútstreymi á sprungu,
síðast árið 1950, þar sem fólk fór í gufubað og nafnið á hólunum er dregið af. Þessa
þurrabaðs, eins og það var nefnt, er fyrst getið í heimildum
frá Gísla biskupi Oddssonar í Skálholti frá 1638. Hann mælir
eindregið með þessu gufubaði og segir það mikla heilsubót
(Undur Íslands). Sagt er, að Guðmundur biskup góði hafi vígt
baðið og heilnæmast sé að baða sig þar frá Jónsmessu til
Þingmaríumessu (24. júní til 2. júlí). Þetta olli mikilli
aðsókn á þessu tímabili, líkt og á pílagrímastöðum. Allt fram á okkar
daga hefur fólk, sem þjáist af gigt, mælt með böðum í Jarðbaðshólum.

Baðfélag Mývatnssveitar
átti þarna skiptiklefa og gufuklefa og
útisturtu þar á milli þar til framkvæmdir
við framtíðaraðstöðu hófust haustið 2003 og lauk að mestu í júní 2004.
Jarðböðin við Mývatn voru opnuð við hátíðlega athöfn 1. júlí 2004.
Jarðböðin og umhverfi þeirra eru einstök upplifun fyrir alla ferðamenn
og þar er einnig frábær veitingaaðstaða í opnu og björtu rými. Í
salnum er hlaðborð, sem engan svíkur, og líka hin rómaða, mývetnska
kjötsúpa.
Jarðböðin eru opin allt árið:
1. júní til 31. ágúst kl. 09:00-24:00 og
1. september til 31. maí kl. 12:00-22:00
Sími: 464-4411 |