Jökulfall
er líka kallað Jökulkvísl.Upptök þess eru nokkrar kvíslar úr Hofsjökli og vestust er
Blákvísl í Blágnípuveri, sem fellur í Jökulfallið hjá Gýgjarfossi.Innri-og Fremri-Árskarðsár falla í það.Vatnasviðið er u.þ.b. 380 km² og meðalrennslið 25-30 m³/sek
austan Tangavers.
Áin er brúuð á leiðinni til Kerlingarfjalla
og undir brúnni
er fossinn Hvinur.Jökulfallið sameinast Hvítá skammt neðan Hvítárvatns.