|
Jökulháls
er austan undir Snæfellsjökli. Þar
liggur leið milli Arnarstapa og Ólafsvíkur.
Hún liggur fyrst meðfram Stapafelli, sé lagt af stað að
sunnanverðu, og með jökulrótum í 700-800 m hæð yfir sjó.
Leiðin er ekki alltaf fær, því að mismunandi er, hve snemma
snjóa leysir. Þessi leið
er tilvalin fyrir göngufólk, enda ekki nema 4-5 klst. ganga milli staða.
Þeir, sem leggja leið sína á jökulinn, halda gjarnan upp á
Jökulháls og þarna hefur verið rekin starfsemi (Snjófell) með snjóbíla
og snjósleðaferðum.
Vikurvinnsla
hófst á Jökulhálsi árið 1937.
Byggðir voru stokkar ofan af hálsinum niður á Arnarstapa til
að fleyta vikrinum með vatni. Niðri
á Stapa var vikurinn kurlaður og settur í skip til Reykjavíkur eða
beint til útlanda.
Heilsárstímabil
1932-33 var helgað alþjóðaveðurathugunum.
Þá voru gerðar veðurathuganir á jöklinum og byggt hús uppi
á Jökulhálsi í þeim tilgangi.
Ferðafélag Íslands eignaðis
þetta hús en það fauk 1936.
Þar var endurreist tvisvar en jarðhiti undir því olli miklum
fúa, þannig að lítið er eftir. |