|
Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum var
stofnaður árið 1973. Hann nær yfir u.þ.b. 150 km² og 35 km langt
svæði meðfram gljúfrasvæði Jökulsár á Fjöllum vestanverðu í
landi bæjanna Svínadals og Áss (hluti Ásheiðar 1974). Ásbyrgi
varð hluti garðsins 1978, en heyrir líka undir Skógrækt ríkisins. Gljúfur Jöklu, einhver hin mikilfenglegustu á landinu, eru u.þ.b. 25
km löng, upp undir hálfur km á breidd og allt að 100 m djúp. Efri
hlutinn, sem nær frá Dettifossi að Syðra-Þórunnarfjalli, er
svipmestur og allt að 120 m djúpur.
Áhugaverðir staðir í
þjóðgarðinum eru m.a. Ásbyrgi,
Hljóðaklettar,
Hólmatungur,
Selfoss og
Hafragilsfoss og
austan ár, utan þjóðgarðs, eru Forvaðar. Sumum finnst Jökulsárgljúfur fegursti staður á landinu til gönguferða, bæði
lengri og skemmri, og það má til sanns vegar færa
Gönguleiðum er
vel lýst í bæklingi þjóðgarðsins. Áhugamenn um jarðfræði,
flóru og fánu finna þar líka góðar lýsingar.
Bæklingar um gönguleiðir í
Kelduhverfi, þjóðgarðinum og á Melrakkasléttu fást í
aðalmiðstöð þjóðgarðsins í Ásbyrgi.
Hinn
7. júní árið 2008 varð þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum
hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.
|