|
Kaldalón
er u.þ.b. 5 km langur fjörður inn úr norðanverðu Ísafjarðardjúpi
í átt að Drangajökli. Inn
af honum er nokkuð undirlendi með jökulöldum og ruðningi og
talsverðum grasgróðri. Áin Mórilla fellur undan skriðjöklinum og smáfyllir fjörðinn
með framburði. Bærinn
Lónhóll er sagður hafa sópast brott í jökulhlaupi á 18. öld.
Annars bæjar er getið í Kaldalóni, Trimbilsstaða, en engin
merki hafa fundizt um hann.
Náttúrufegurð
er við brugðið í Kaldalóni.
Vegur, sem endar við Tyrðilmýri, yzta byggt ból á Snæfjallaströnd,
liggur um brú yfir Mórillu. Vegalengdin
milli Tyrðilmýrar og Ísafjarðar landleiðina er u.þ.b. 220 km.
Bærinn Ármúli er næstur innan við Kaldalón. Þar bjó um tíma héraðslæknirinn og tónskáldið
Sigvaldi Kaldalóns. Kaldalónsnafnið
tók hann upp vegna þess, hve hrifinn hann var af fegurð náttúrunnar
á þessum slóðum.
Gönguleiðir liggja frá Kaldalóni til
Jökulfjarða og yfir Drangajökul til Hornstranda. |