|
Kaldbakur
(508m) er sunnan Kaldbaksvíkur. Stórgrýtisurðin
sjávarmegin við fjallið heitir Kleif og götutroðningarnir í
gegnum hana eru kallaðir Ófæra. Uppi í Kaldbakshorni
fyrir ofan er Svansgjá. Njálssaga segir frá örlögum
Snans á Svanshóli í róðri. Þar segir, að fiskimenn,
sem voru að Kalbaki, þóttust sjá hann ganga í fjallið
Kaldbakshorn, þar sem honum var vel fagnað.
Bæði
Landnáma og Grettissaga segja okkur frá landnámsmanninum Önundi tréfæti
Ófeigssyni, sem byggði bæ sinn Kaldbak við samnefnda vík.
Hann nam líka landið við Kolbeins- og Birgisvíkur.
Enn þá sést fyrir verbúðum í Skreflum, sem eru fyrir innan
Spena, þar sem hreppamörkin eru.
Katólskt bænhús var á Kaldbak en það var lagt niður fljótlega
eftir siðaskiptin. Þarna var einnig bærinn Kleifar
og inn af víkinni er Kaldbaksvatn, þar sem er góð silungsveiði.
Kaldbakur
fór í eyði 1967 en jörðin hefur verið nytjuð frá Bjarnarfirði.
Þar stendur enn þá íbúðarhús úr timbri, sem var
endurbyggt eftir 1940 úr viðum síðasta kaupmannshússins í Kúvíkum.
Snjóflóð féll á húsið veturinn 1994-95 og skemmdi það
eftir nýlegar endurbætur.
Þarna hefur ætíð verið mikil snjóflóðahætta vegna þess,
hve miklar hengjur myndast í brúnum Kaldbaksfjalls.
Inn af
Kaldbaksvík eru Hveratungur, þar sem finnst allt að 70°C heitt vatn. |