|
Kálfskinn
er bær á Árskógsströnd, þar sem er rekin fjölþætt ferðaþjónusta (2003).
Sögulegur ljómi staðarins byggist á búsetu Hræreks konungs af Heiðmörk í
Noregi, sem Ólafur helgi lét blinda og senda til Íslands. Honum þótti
líf sit batna við brotthvarf sitt frá heimahögunum og lítils samneytis
við höfðingja, því hann var meira metinn á Kálfskinni en aðrir menn.
Dauður var hann heygður í Hrærekshóli við túnið á bænum, eini
konungurinn, sem hlotið hefur leg á Íslandi. Núverandi konungur á
staðnum, Sveinn Jónsson (2003), hefur um árabil verið nokkrum spönnum á
undan sínum samtímamönnum í framtíðaráfornum um ferðaþjónustu, sem hafa
samt fæstar hlotið brautargengi nema hann hafi rutt þeim braut með
niðjum sínum og verður vafalaust minnst sem einhvers hugmyndaríkasta
frumkvöðuls á því sviði. |