|
Eyðibýli í
Höfnum, fyrrum höfuðból, Suður af Kalmanstjörn eru leifar byggðar fyrr
á öldum. Þar var Kirkjuhöfn, stórbýli áður fyrr. Herma munnmæli að þar
hafi verið 50 hurðir á járnum. Þá er talið að Kalmanstjörn hafi verið
hjáleiga frá Kirkjuhöfn. Þar var kirkja og sjást minjar kirkjugarðsins
að því er talið er. Lengra suður með sjónum er Sandhöfn og síðan Eyri
er fór í eyði um 1828. Öll þessi byggð fór smám saman í eyði vegna
landskjálfta og sandfoks. |