|
Kapelluhraun,
líka nefndt Nýjahraun, er úfið og gróðursnautt milli Hafnarfjarðar og
Staums. Talið er að það hafi runnið snemma á sögulegum tíma
(1010-1020). Í hrauninu, sunnan við Reykjanesbrautina, beint á móti
álverinu í Staumsvík er lítið byrgi, hlaðið úr hraungrýti, sem nefnist
Kapella. Árið 1950 fannst þar við uppgröft lítið líkneski heilagrar
Barböru og eru talið er að þarna hafi verið bænastaður ferðamanna í
kaþólskum sið. Á síðustu árum hefur mikið efni verið tekið úr
hrauninu til uppfyllingar í húsgrunna og götur á Stór- Reykjavíkursvæðinu
og það sléttað. Hraunhóllinn með kapellunni hefur verið látinn
ósnortinn og er nú friðlýstur. Skammt sunnan hans er Straumsvík. |