|
Katanes
var bústaður Kalmans hins suðureyska, sem fluttist búferlum að
Kalmanstungu í Mýrarsýslu eftir að synir hans tveir drukknuðu í
Hvalfirði. Í lok 19. aldar komst á kreik saga um skrímsli í
Katanestjörn og marga fýsti að sjá það. Landshöfðingi réði Sigfús
Eymundsson, ljósmyndara, til að ná mynd af því og Andrés Fjeldsted til
að skjóta það. Hvorki sást haus né sporður af skrímslinu, enda var það
líklega hugarfóstur tveggja stráka, sem varð svona vel ágengt með
lygasögu sína. Landshöfðingi neitaði að greiða Andrési fyrir ómakið,
svo hann leitaði til dómstóla. Síðar var tjörnin ræst fram og hvarf.
Faxaflóahafnir keyptu jörðina í lok nóvember 2006. Hluti hennar á
að nýtast til viðbótar hafnaraðstöðu á svæðinu.
Kalmannstunga.
Nafn bæjarins er komið frá landnámsmanninum Kalmani hinum
suðureyska. Hann flutti byggð sína frá Katanesi eftir að synir
hans drukknuðu í Hvalfirði.
Vestan
Kalmanstungu er ljósgrýtisfjallið Tunga, þar sem voru fyrrum bæirnir Brenna,
þar sem Kári Kýlansson var brenndur inni, og Bjarnastaðir. Knud Zimsen,
borgarstjóri í Reykjavík, lét reisa sumarhúsið Bjarkargil 1940. Kirkja
var byggð að Bjarnastöðum og fjöldi manns var grafinn í kirkjugarði
hennar. Í Kalmanstungu var kirkja til 1812. Kötlutún eða Sturlustaðir
eru aðeins austar, sunnan Strúts. Ofan rústanna þar er Stóri-Ketill,
þar sem hverinn Skrifla er sagður hafa verið fyrst áður en hann flutti
sig í þremur áföngum að Reykholti vegna þess að blóði stokkin föt
saklauss manns, sem var veginn, voru þvegin í honum.
Kalmanshellir. Kalman bóndi Stefánsson (1930-) kannaði
þennan helli í Hallmundarhrauni norðan Þrístapafells í Jökulkróki.
Hellirinn er u.þ.b. 1 km langur og ógreiðfær vegna hruns á gólfi og víða
eru göt í lofti hans. Innst var hann lokaður af ísi og langur
hluti hans er á tveimur hæðum. Þak neðri hæðarinnar virðist víða
mjög ótryggt. Bezt er að fara þarna um með varúð, því jarðskjálfta
er von á Vesturlandi.
Vopnalág
er fjórum kílómeturm innan Surtshellis í landi
Kalmanstungu sunnan Norðlingafljóts. Þar komu Borgfirðingar
Hellismönnum að óvörum eftir að bóndasonurinn frá Kalmanstungu ávann sér
traust þeirra. Hann komst síðan frá þeim og gerði byggðamönnum
aðvart. Hellismenn voru dauðþreyttir eftir langa smalamennsku og
sváfu í láginni. Sumir voru drepnir þar, aðrir á flótta, en
Eiríkur einfætti komst undan yfir Eiríksjökul og þaðan á skip til
útlanda. Vopnalág er í laginu eins og skeifa og grösug. |