Móbergsfjall (379 m.y.s) á Reykjanesskaga. Keilir er til orðinn við gos
undir jökli á ísöld. Hann er þekktur vegna sérkennilegrar
strýtumyndaðrar lögunar sinnar sem er til komin vegna gígtappa eða
bergstands á fjallinu miðju er ver það gegn veðrun. Útsýni er mikið af
Keili yfir Reykjanesskagann og víðar.