
 |
Keldunes
er bæjahverfi í Kelduhverfi, alls sex samtýnis bæir. Þar í nágrenninu
eru Keldunesbrunnar, stór bullaugu við hraunbrúnina. Þarna var
þingstaður sveitarinnar og fæðingarstaður Skúla Magnússonar (1711-94),
fyrsta íslenzka landfógetans. Hann var frumkvöðull og stofnandi
Innréttinganna í Reykjavík, fyrstu tilraunar til eflingar fullvinnslu
ullar hérlendis, og baráttumaður fyrir verzlunarréttindum landsmanna og
réttarkröfum á sviði verzlunar þeirra gegn dönsku einokuninni og dönskum
stjórnvöldum. Hann átti í stöðugum deilum og málaferlum ævilangt, var
traustur og raungóður vinur vina sinna. Hann var penni góður og skildi
eftir sig fjölbreyttar ritsmíðar.
Bóndinn í
Keldunesi skömmu eftir 1700 eignaðist barn með mágkonu sinni og þrátt
fyrir að hann fengi annan mann til að gangast við barninu og loforð frá
sýslumanni um uppgjöf saka, var hann dæmdur til lífláts á Alþingi 1705.
Ekki vildi hann að lögð yrði náðunarbeiðni fyrir konung en setti fram
þjár óskir, sem honum voru veittar. Hann fékk að ganga ójárnaður að
höggstokknum, föt hans voru gefin fátækum í stað böðlinum og leg í
vígðum reit. Barnsmóðurinni var drekkt á heimaslóðum í kjölfarið. |