|
Stórbýlið
Eystri- og Vestri-Kirkjubær er á miðjum Rangárvöllum. Austan þess er
Kirkjubæjarsíki, sem fær síðar nafnið Strandarsíki.
Áratugum saman
hefur Kirkjubær verið kunnur fyrir hrossarækt en fyrrum var hann eitt
sögusviða Njálu. Þangað sendi Hallgerður langbrók Melkólf þræl sinn til
að stela mat úr búri Otkels eftir að hann hafði neitað að selja Gunnari
Hámundarsyni mat og hey. Af þessu spunnust miklar deilur og málaferli.
Talið er, að nafn bæjarins sé eldra en kristni, þótt engin skýring hafi
fundizt á því. Engu að síður var Kirkjubær kirkjustaður áður fyrr.
Árið 1930 var grafið fyrir húsi að Kirkjubæ. Þá komu upp mannabein, sem
voru talin tilheyra fornum grafreit. |