Fyrrum
stórbýli í Höfnum, útkirkjustaður í Grindavíkurprestkalli frá 1907 en
var áður alllengi þjónað frá Útskálum. Enn fyrr var Kirkjuvogi þjónað
frá Hvalsnesi. Kirkja í Kirkjuvogi var helguð Maríu guðsmóður í
kaþólskum sið. Í illviðrinu mikla í ársbyrjum 1799 skemmdist
kirkjuhúsið mikið.