|
Kjaransvík,
Hlöðuvík og Hælavík eru kallaðar Víkurnar.
Þær eru á milli Kjalárnúps í Almenningum og Hælavíkurbjargs.
Kjaransvík er vestust og milli hennar og Hlöðuvíkur er Álfsfell,
sem hægt er að ganga fyrir í fjörunni.
Vestan Kjaransvíkurár, við Álfsfell, má enn þá geina rústir
Kjaransvíkurbæjarins. Kjalárnúpur
austan víkurinnar steypist þverhníptur í sjó og neðan hans eru
berggangarnir Langikambur og Teigarkambur.
Skammt þaðan er eyðibýlið Teigarkambur.
Gönguleiðir
liggja upp á Kjalárnúp, til Fljótavíkur um Almenninga eða Þorleifsskarð,
og um Kjaransvíkurskarð að Innri-Hesteyrarbrúnum og eftir þeim til
Hesteyrar við Hesteyrarfjörð (vel merkt leið). |