|
Kjólsvík er lítil vík milli
Glettings og Grenmós. Hún er stutt, undirlendi er
lítið og berghlaup
setja mikinn svip á landslagið.
Samkvæmt munnmælum, var undirlendið slétt og fagurt og uppi á
Víðidalsfjalli var stöðuvatn. Nótt eina klofnaði fjallið um
vatnið og hljóp fram yfir undirlendið. Þetta berghlaup heitir nú
Háuhlaup ofantil en Láguhlaup neðantil.
Umhverfi bæjarins í Kjólsvík var hrikalegt, þar sem hann stóð undir
snarbröttum hlíðum Glettings sunnanverðum úti við sjó. Ofan
bæjarins var kletturinn Kjóll, sem víkin dregur nafn sitt af. Í
fornu máli þýddi orðið kjóll skip (kjöl). Þessi klettur varði
bæinn fyrir berghlaupum. Þarna voru og eru enn góð beitarlönd
fyrir sauðfé, því land er velgróið og snjólétt. Kjólsvíkurbærinn
fór í eyði 1938. |