|
Krepputunga er 50-60 km löng tunga á milli
Kreppu og Jökulsár á Fjöllum, allt suður Í
Kverkfjöll. Nyrzt
er hún mjó og tiltölulega flatlend en breikkar og hækkar til suðurs,
þar sem eru hnjúkaraðirnar Kverkfjallarani.
Þangað hafa runnið mikil hraun suðvestanundan Dyngjufjöllum
og jökulhlaup undan Dyngjujökli.
Einu gróðurblettirnir eru í Hvannalindum og við Jökulsá
á móti Vaðöldu.
Ferðafélög
Fljótsdalshéraðs, Húsavíkur og Vopnafjarðar byggðu skála undir
Virkisfelli 1972 í u.þ.b. 840 m hæð yfir sjó. Hann var skírður Sigurðarskáli
til minningar um Sigurð Egilsson (1892-1979) frá Laxamýri, sem var
mikill áhugamaður um ferðalög.
Skálinn var stækkaður og bættur 1995.
Tvær leiðir liggja inn í Krepputungu, u.þ.b. 96 km leið frá
þjóðvegi # 1 við Möðrudal og frá leiðinni milli Herðubreiðarlinda
og Dyngjufjalla um brú hjá Upptyppingum.
Í þurrkatíð verða sandorpnir kaflar þungir og erfiðir
yfirferðar. Frá Sigurðarskála
liggur vegur áleiðis að Kverkjökli en sú leið hefur verið misjöfn
vegna breytinga frárennslis frá jöklinum.
Mynd: Sigurðarskáli. |