|
Kúvíkur eru við Reykjarfjörð
og byggðust úr landi Halldórsstaða.
Þar var eini verzlunarstaður Strandasýslu frá því um 1600
þar til Borðeyri varð löggiltur verzlunarstaður 1846. Þar voru um
tíma tvær verzlanir og heimavistarskóli var rekinn þar einn vetur
(1916). Í dönskum
heimildum er getið lýsishafnar við Reykjarfjörð, hinnar einu slíkrar
á landinu, sem gefur til kynna mikilvægi viðskipta með hákarlalýsi.
Í kjölfar einokunar hófst föst búseta kaupmanna.
Byggð hélzt í Kúvíkum fram á 20. öldina en fluttist að
mestu til Djúpavíkur, þegar síldarævintýrið stóð hæst.
Áður en það hófst var mikil hákarlaútgerð frá Kúvíkum
með dekkbátum. Þar má
ennþá sjá merki umsvifanna, til dæmis potta, sem hákarlalýsið var
soðið í og tóftir sem gefa hugmynd um skipulag kaupstaðarins.
Norðmenn reistu síldarsöltunarstöð utan við Kúvíkur upp úr
aldamótunum 1900 og nefndu hana Heklu.
Thorarensen-ættin er upprunnin í Kúvíkum. |