|
Kvíabryggja
var vistheimili, sem Reykjavíkurborg rak vegna manna, sem stóðu
ekki í skilum með barnameðlög.
Þeirri starfsemi var hætt og nú hýsir Kvíabryggja
afbrotamenn, sem hafa hlotið fyrsta fangelsisdóm sinn.
Kvíabryggja var aðalútgerðarstöðin .við Grundarfjörð
áður en lendingarbætur voru gerðar í Grafarnesi, þar sem kauptúnið
er núna. Þéttbýli fór
að myndast snemma á 20. öld og flestir íbúar Kvíabryggju
fluttust þangað, þegar Hraðfrystihús Grundarfjarðar tók til
starfa 1942.
Nú er
spurningin: Hvern er átt við í neðangreindri vísu?
Hún er svolítið leirblönduð, en það er við vel við hæfi.
Í steina hegg og slæ
við fjörðinn úfinn sæ
og veit hvað ég syng
enda kominn á þing. |