|
Langidalur
er í Merkurrananum norðan Krossár við austanverðan Valahnúk
(458m). Þetta grösuga dalverpi er breiðast fremst, þar
sem Ferðafélag Íslands reisti Skagfjörðsskála 1954 og nefndi
eftir Krisjáni Ó. Skagfjörð, sem var lengi framkvæmdastjóri
þess og mikill ferðamaður. Milli Húsadals og Langadals
er mjór hryggur. Um og úr dalnum liggja gönguleiðir
til allra átta, m.a. upp á Valahnúk, yfir í Húsadal, upp
Fremra-Slyppugil og yfir Krossa um göngubrú við rætur Valahnúks. |