|
Árið 1871 kom Sigurður Guðmundsson, listmálari, fram með þá
hugmynd, að gera Laugardalinn að íþrótta- og
útivistarsvæði fyrir höfuðborgarbúa. Hann áleit dalinn mjög
vel fallinn til skógræktar og ræktunar skrautblóma og sá
fyrir sér fólk í skemmtigöngum og hvíldarstaði í fallegum
rjóðrum. Hann var kjörinn í byggingarnefnd borgarinnar árið
1869. Hugmyndir hans lágu í þagnargildi til ársins 1943,
þegar borgarráð samþykkti að hrinda þeim í framkvæmd. Mýrin
í dalnum var ræst fram árið 1946. Eiríkur Hjartarson,
rafvirki, hafði byggt sér einbýlishús í dalnum árið 1929 og
nefnt það Laugardalur, sem varð síðan nafnið á dalnum. Hann
var ákafur skógræktarmaður og gróðursetti fjölda trjáa
vestan núverandi legu grasagarðsins. Þar eru mörg hæstu
trjáa borgarinnar nú. Borgin
keypti lundinn árið 1955 og miklu hefur verið aukið við hann síðan.
GRASAGARÐURINN
Enginn, sem hefur áhuga á
grasafræði, ætti að láta þennan garð fram hjá sér fara. Hann var
stofnaður 18. ágúst 1961. Garðurinn er einn af u.þ.b. 1500 grasagarða
og trjásafna, sem eru starfandi í heiminum. Sameiginlegur tilgangur
þeirra er að fræða um og efla skilning á mikilvægi gróðurs og
varðveita plöntur og plöntusöfn, ekki sízt þær plöntur, sem eru í
útrýmingarhættu.
HLAUPABRAUTIR
Það er hollt að hlaupa og ganga, sýna sig og sjá aðra. Upphaf hlaupabrautanna er
við sundlaugina og skautahöllina. Hlauparar nota oft aðstöðuna þar til að skipta um
föt á sumrin. Brautirnar eru tveggja til tíu kílómetra langar og greinilega merktar,
þannig að auðvelt er að fylgjast með vegalengdum og bættum árangri hverju
sinni.
PÚTTVÖLLURINN
Púttvöllurinn er rétt hjá gervigrasvellinum. Þar getur fólk æft sig í pútti og
komizt að því hvaða hæfileikum það er búið á þessu sviði. Kylfur og kúlur
fást lánaðar í þjónustumiðstöðinni við gervigrasvöllinn.
SUNDLAUGIN
Sundlaugin
er hin stærsta í landinu. Aðstaðan er góð fyrir alla aldurshópa, hvort
sem þeir eru að æfingum, leik, eða í afslöppun. Þarna er sérstök laug
fyrir börn og 80 m löng vatnsrennibraut. Á góðviðrisdögum eru tekin
fram alls konar leikföng fyrir börnin. Auk framangreinds eru boðin
leirböð, gufubað, æfingartæki, sólarlampar og nudd.
Utan við innganginn að Laugum afhjúpaði Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson verkið Lífssúluna eftir Sigurð Guðmundsson 15. júní 2007.
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN
Íþróttamiðstöðin er rétt vestan íþróttahallarinnar. Þar eru skrifstofur
ÍSÍ, ÍBR, UMSK og annarra samtaka innan ÍSÍ. ÍSÍ hefur yfirumsjón með öllum
íþróttaviðburðum í landinu og veitir upplýsingar um þá á skrifstofutíma. ÍSÍ
rekur líka tvö lottó og íþróttahótel í sömu byggingu. Kaffiterían í
íþróttamiðstöðinni er opin milli 08:00 og 24:00 á virkum dögum.
KFUM og KFUK
KFUM og KFUK eiga aðsetur við Holtaveg. Þar eru haldnir fundir og
fjölskyldusamkomur, skipulagðir fræðslufundir og tónlistar- og tómstundastarfsemi,
sem fellur vel að annarri starfsemi í dalnum. Allir, sem leita afþreyingu, fræðslu og
góðs félagsskapar eru alltaf velkomnir.
TJALDSTÆÐIÐ
Tjaldstæðið er við hliðina á sundlauginni. Þar er pláss fyrir 300 tjöld og
þjónustumiðstöðin er með ágætum. Þar er hægt að þvo þvott, vaska upp, nota
útigrillin eða elda í eldhúsinu. Hægt er að leigja smáhýsi í uppbúnum rúmum
fyrir tvo eða fleiri, ef sofið er í svefnpokum. Tjaldstæðisins er gætt allan
sólarhringinn á sumrin og gæzlufólkið veitir upplýsingar um ýmiss konar
skoðunarferðir.
SKAUTAHÖLLIN
Áður en skautavöllurinn varð að veruleika fór fólk á skauta á tjörninni í
Reykjavík. Skautavöllurinn var við lýði í mörg herrans ár áður en skautahöllin
var opnuð. Nú er ekki einu sinni þörf á að koma með eigin skauta, því að þeir
eru leigðir í höllinni.
FARFUGLAHEIMILIÐ
Farfuglaheimilið hýsir bæði einstaklinga og hópa í tveggja-, fjögurra-,sex- og
átta manna herbergjum. Þar er hægt að setjast niður og slappa af í setustofunni,
elda í eldhúsinu og borða í borðstofunni eða halda og sækja fundi í fundarsalnum.
Morgunverðarhlaðborð stendur einstaklingum og hópum til boða og máltíðir fyrir
hópa. Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn og upplýsingamiðstöð á
skrifstofutíma.
ÍÞRÓTTAVELLIRNIR
Laugardalsvöllur uppfyllir öll alþjóðleg skilyrði. Áhorfendapallar taka 7000
manns í sæti og völlurinn er flóðlýstur. KSÍ var ábyrgt fyrir síðustu
framkvæmdum við völlinn og hefur nú aðalbækistöðvar þar og annast reksturinn.
Valbjarnarvöll nota 3. og 4. deildir knattspyrnuliða til æfinga. Knattspyrna er leikin
allt árið á upphituðum gervigrasvelli.
KÖRFUBOLTI, TENNIS OG
VEGGBOLTI
Þessir vellir eru við hliðina á gervigrasvellinum og eru opnir öllum án
takmarkana. Fólk þarf aðeins að koma með viðeigandi spaða og tæki til að njóta
leiksins.
LAUGARDALSHÖLL
Laugardalshöllin er margnota bygging fyrir ýmiss konar íþrótta- og
tónlistarviðburði og vörusýningar.
ÞVOTTALAUGARNAR
Þvottalaugarnar eru rétt hjá Valbjarnarvelli. Þar er saga þeirra rakin í máli og
myndum. Þarna þvoðu húsmæður í Reykjavík þvotta sína um aldir. Það er gaman
að kynna sér menningarlegt og sögulegt gildi þeirra.
Fjölskyldu-, húsdýra-
og grasagarðanna í Laugardalnum er getið
sérstaklega annars staðar. |