|
Leirufjörður
er minnstur og syðstur Jökulfjarða.
Hann er smám saman að fyllast af framburði frá
Drangajökli.
Höfuðbólið Dynjandi stóð vestan fjarðar og samnefnd á,
sem fellur í samnefndur fossi í sjó fram, rennur skammt þaðan.
Sunnan eyðibýlisins er Dynjandisdalur með fornri leið um
Dynjandisskarð (574m) og
til Unaðsdals við Djúp.
Gamlir símastaurar á leiðinni gera hana auðrataða.
Tröllafell skilur dalinn að frá Múladal, sem gengur inn af
honum til vesturs.
Drangarnir upp úr fjallinu eru steinrunnin nátttröll.
Ferðamenn,
sem komu norðan úr Hrafnfirði, gerðu þeir vart við sig frá Breiðanesi
handan fjarðar til að fá bátsferð yfir fjörðinn.
Andstæðurnar í landslagi Leirufjarðar eru miklar, tærir lækir,
jökulgori, gráar leirur, mýrar og blómum prýddar malareyrar.
Gönguleiðin
um Höfðaströnd til Grunnavíkur er falleg og auðveld. |