|
Litla-Hraun var
hjáleiga frá Hrauni. Vinnuhælið var byggt í landi Háeyrar 1919 sem
sjúkrahús fyrir Suðurland. Árið 1929 var því breytt í vinnuhæli og
jarðirnar Litla- og Stóra-Hraun lagðar til þess. „Gestir” vinnuhælisins
stunduðu bústörf þar til 1970. Fimm árum síðar tók Búnaðarfélagið
jarðirnar á leigu og rak þar stóðhestaeldi. Löngum hefur verið stunduð
járnsmíði og framleiðsla hluta úr steinsteypu á vinnuhælinu.
Tveggja hæða
viðbygging var reist austan gamla hússins 1972 og önnur vestan við það
árið 1980. Nýjasta viðbyggingin með turninum var vígð 24. okt. 1995.
Þetta fangelsi getur hýst 87 fanga. Guðjón Samúelsson teiknaði elzta
húsið, húsameistari ríkisins viðbyggingarnar og arkitektastofa Finns og
Hilmars nýjustu bygginguna. |