Litla
kaffistofan í Svínahrauni stendur á mörkum gömlu og nýju þjóðleiðarinnar
yfir Hellisheiði.Þar njóta margir góðra veitinga allt árið og þakka sínum
sæla fyrir skjólið í vondum veðrum á veturna.
Ekki þarf vont veður til, því viðurgerningur er góður og viðmót gott.Margir leita þangað á góðviðrisdögum á veturna með snjósleða
sína eða gönguskíði og njóta útiveru og umhverfis.