|
Lokinhamradalur,
vestast í norðanverðum Arnarfirði, er hömrum girtur nema til
vesturs og meðal afskekktustu byggðra bóla landsins.
Þangað og þaðan ferðast fólk fótgangandi eða í jeppum
eftir tæpri slóð.
Þarna nýtur sumarfagurt, vestfirzkt landslag sín til fullnustu
í svotil undirlendislausu en velgrónu umhverfi.
Draugarnir
Lokinhamra-Skotta, Stutta-Gunna, Arnarnúps-Móri og Gunnhildur á
Sveinseyri voru þarna á sveimi og hinn síðastnefndi líklega enn
þá. Náttskessan
Kerling varð að steini í Grísavík í dagrenningu.
Guðmundur G. Hagalín, rithöfundur, fæddist þar um aldamótin
1900.
Nú
eru tveir bæir, Hrafnabjörg og Aðalból, í dalsmynninu.
Lokinhamrar eru í eyði.
Fólkið í dalnum byggði afkomu sína á sjónum og veiddi aðallega
þorsk og hákarl frá Grísavík, þar sem enn sést til rústa verbúða. |