|
Maríuhöfn er forn verzlunarstaður við Laxárvog utan- og norðanverðan í
Hvalfirði. Allt frá þjóðveldisöld var Maríuhöfn meðal
aðalsiglingastaða landsins og í annálum er víða getið um skipakomur í
Hvalfjörð. Skálholtsbiskupar sigldu oft þaðan utan og þangað út.
Svartidauði barst þangað með klæðum Einars Herjólfssonar árið 1402.
Hann andaðist í hafi og klæðin voru afhent ættingjum hans. Búðasandur
er vestan Maríuhafnar. Ofan lónsins þar, milli sands og sjávar, eru
margar búðarústir kaupstaðarins. Líklega lagðist Maríuhöfn af á 15.
öld, þegar kuggar komu til sögunnar. Þeir voru djúpskreiðari og
þurftu dýpri hafnir. |