|

Marteinsflæða (Hitulaug) er norðan Gæsavatna og um hana liggur
jeppaslóð alla leið niður í Bárðardal austan Skjálfandafljóts. Þetta
svæði skiptist í Syðri- og Ytri-Hitulaug, sem eru á afrétti
Bárðdælinga. Meira vatn, 30-40°C heitt, kemur upp um sprungu í syðri
laugina, rétt sunnan Marteinsflæðu. Baldur Sigurðsson á Akureyri
setti dínamíttúpu í sprunguna og útkoman varð ágætisbaðlaug. Ytri
laugin er við vesturjaðar Laufrandarhrauns, sem er talið
aðalvarpstaður snjóuglunnar hérlendis. |