|
Reiðvegir
milli Seyðisfjarðar og Reyðarfjarðar mynduðu krossgötur í landi
Miðhúsa fyrr á öldum. Bærinn
er sunnan Eyvindarár í grennd við mót vega að Eiðum og yfir Fjarðarheiði
til Seyðisfjarðar. Þarna var reist gistihús á níunda tugi 19.
aldar, sem stendur enn þá.
Árið
1980 fanns þarna silfursjóður frá landnámsöld.
Hann vegur rúmlega 650 g og telur 41 grip.
Þáverandi þjóðminjavörður, Kristján Eldjárn, áleit hann
einhvern merkasta fund, sem fundizt hefði frá þessum tíma.
Rúmlega áratugi síðar upphófust deilur um sjóðinn vegna þess,
að sumir töldu hann falsaðan. Það
tók nokkur ár fyrir fólkið á Miðhúsum að hreinsa sig af þessum
áburði.
Núverandi
húsráðendur í Miðhúsum eru við sama heygarðshornið og forverar
þeirra og bjóða gestum og gangandi dvöl í sumarhúsum og haglega smíðaða
gripi í handverkshúsi. |