|
Möðruvellir
í Hörgárdal eru höfðingjasetur og stórbýli frá fornu fari.
Kirkjan þar var reist á árunum 1865-67 eftir að fyrri kirkja
hafði brunnið til grunna. Hún
var byggð í upphaflegri gerð og er vönduð og vegleg.
Allir gripir gömlu kirkjunnar týndust í brunanum nema
altaristaflan.
Munkaklaustur
var stofnað þar 1296. Mikið
tjón varð árið 1316, þegar klaustrið brann vegna óaðgætni og
svalls munkanna.
Eftir siðaskipti urðu Möðruvellir konungseign og margri
amtmenn norður- og austuramtsins sátu þar.
Jón Sveinsson, Nonni (1857-1944) og Hannes Hafstein (1861-1922)
fæddust þar og ólust þar upp um tíma.
Fyrsti gagnfræðaskóli landsins var stofnaður þar árið
1880. Hann var fluttur til Akureyrar 1902. Vegalengdin frá Reykjavík er 376 km um Hvalfjarðargöng.
Annað tveggja tilraunabúa í nautgriparækt hefur veriðs starfrækt
að Möðruvöllum síðan 1974, þegar það var flutt frá Lundi og
Rangárvöllum við Akureyri vegna þess, að byggðin var farin að
þrengja að. Reyndar var búið flutt tímabundið að Galtalæk
við Akureyri áður en það fékk varanlegan sess á Möðruvöllum. |