|
Mógilsá
er við botn Kollafjarðar.
Þar var kalknáma í Esjunni og kalkið var brennt í ofnum, sem
var komið fyrir við Arnarhól og gatan þar síðar skírð
Kalkofnsvegur.
Í kalknámunni og næsta nágrenni fannst líka smávottur af
gulli.
Skógrækt
ríkisins eignaðist Mógilsá og kom þar upp rannsóknarstöð 1967.
Þar starfar forstöðumaður, sem jafnframt er sérfræðingur,
sjö sérfræðingar, fulltrúi, ræktunarstjóri og aðstoðarfólk.
Rannsóknir fara fram að hluta á Mógilsá, þar sem m.a. er fullbúin
gróðrarstöð og tilraunastofa, en annars eru tilraunareitir dreifðir
víðs vegar um landið. Gróðrarstöðin á Mógilsá er notuð til að
framleiða tilraunaplöntur og fyrir tilraunir í frærækt. Helstu
verkefnasvið rannsókna á Mógilsá eru: kvæma- og klónatilraunir,
kynbætur og frærækt, vistfræði birkiskóga, ræktunartækni, skordýr
og aðrir skaðvaldar, vefjarækt og athuganir á skógræktarskilyrðum.
Fiskeldisstöð
ríkisins er í næsta nágrenni við Mógilsá.
Hún var stofnuð 1961 á jörðinni Kollafirði og þar var stundað seiðaeldi til
sleppingar víða um land, kynbótatilraunir og hafbeit.
Margt
göngufólk, sem ætlar að sigrast á Esjunni, leggur
gjarnan af stað í
fjallgönguna frá Mógilsá en ágætur uppgöngustaður er
einnig frá Esjubergi. |